Plastic Gods all-ages 18. maí 2012 (föstudagur) Plastic Gods munu halda tónleika í TÞM 18 maí ásamt Caterpillarmen og Godchilla.
Plastic Gods eru... [meira]
PLASTIC GODS
CATERPILLARMEN
GODCHILLA
ENTOMBED 9. júní 2012 (laugardagur) ATHUGIÐ ÞAÐ MÁ ENGINN MISSA AF ÞESSUM TÓNLEIKUM!
Entombed kemur frá Svíðþjóð... [meira]
TON Upphaflega nafn hljómsveitarinnar Type O Negative var Nu-Minority. Meðlimir hljómsveitarinna fóru að hugsa um bandið í fullri alvöru og ákváðu að skipta um nafn. Næsta nafn fyrir valinu var Repulsion (en fyrstu bolir og demo sveitarinnar voru gerð með þessu nafni). Eftir það hét bandið Sub-Zero í 2 eða 3 daga, en þá loksins var ákveðið að nefna bandið Type O negative.
15. maí 2012 þri. | Skrifa athugasemd
| Valli Ophidian I með nýtt lag! Hljómsveitin Ophidian I, sem inniheldur meðlimi hljómsveita á borð við Beneath, Severed Crotch, Discord og Dysmorphic sendir frá sér nýja breiðskífu núna í sumar á SFC Records útgáfunni.
Sveitin skellti nýverið laginu Solvet Saeclum á youtube sem hægt er að hlusta á hér að neðan:
facebook.com
14. maí 2012 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Baroness Hljómsveitin Baroness stefnir á útgáfu af nýrri breiðskífu 17. júlí næstkomandi, en skífa þessi hefur fengið nafnið "Yellow & Green". Tvær fyrri breiðskífur sveitarinnr (bláa platan og rauða platan) fengu báðar viðurkenningu sem plata árins frá tímaritum á borð við Revolver og Decibel.
Lagalisti nýju útgáfunnar er eftirfarandi:
Diskur 1:
01. Yellow Theme
02. Take My Bones Away
03. March To The Sea
04. Little Things
05. Twinkler
06. Cocainium
07. Back Where I Belong
08. Sea Lungs
09. Eula
Diskur 2:
01. Green Theme
02. Board Up The House
03. Mtns. (The Crown & Anchor)
04. Foolsong
05. Collapse
06. Psalms Alive
07. Stretchmarker
08. The Line Between
09. If I Forget Thee, Lowcountry
Sýnishorn úr plötunni:
Hér að neðan má heyra fyrstu smáskífu plötunnar, við lagið Take My Bones Away:
blabbermouth.net
14. maí 2012 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Entombed Íslandsvinirnir í hljómsveitinni Entombed ætla að senda frá sér smáskífu með laginu Amok 23. maí næstkomandi, en lagið var upprunalega gefið út á plötunni Seprent Saints árið 2007. Á nýju smáskífunni verður að finna nýja upptöku af laginu Amok og fær lagið væntanlega að hljóma laugardaginn 9. júní á Gamla gauknum. blabbermouth.net
29. apríl 2012 sun. | Skrifa athugasemd
| Valli Barge to hell! Hljómsveitin Sólstafir hafa fengið boðskort í siglingu frá Miami í Flórídafylki (Í Bandaríkjum Norður Ameríku) að Nassau borg á Bahamaeyjum (og til baka) í byrjun desember mánaðar á þessu ár. Ferð þessi er nokkuð mögnuð þar em hljómsveitir á borð við Sepultura, Sacred Reich, At the Gates, Enslaved, Moonspell, Paradise Lost, Rotting Christ, Sodom, Soilwork, og margar margar fleiri spila á þessu merkilega ferðalagi (ásamt Sólstöfum). Eins og stendur er bara búið að tilkynna 21 band af þeim 40 sem á siglingunni spila.
Hægt er að kynna sér þessa ferð nánar með því að kíkja á heimasíðuna: http://www.bargetohell.com bargetohell.com
27. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Eistnaflug 2012 Heildarlisti yfir allar þær hljómsveitir sem spila eistnaflugi árið 2012 hefur verið opinberaður. Hljómsveitirnar sem spila þetta árið eru:
All star band Angist At Dodge City, Atrum, Beneath, Blood Feud, Carpe Noctem, Celestine, Cephalic Carnage, Dimma, Dr Spock, Elín Helena, Endless Dark, Gone Postal, Gruesome Glory, Hellvar, Hljómsveitin Ég, Hylur, I Adapt, In Company of Men, Innvortis, Logn, Mínus, Moldun, Momentum, Morðingjarnir, Muck, Norn, Oni, Ophidian I, Otto Katz Orchestra, Plastic Gods, Saktmóðigur, Severed Crotch, Synarchy (FO), Skálmöld, Sólstafir, Strigaskór nr 42, The Vintage Caravan, Vicky og Wistaria. VIð þennan lista bætist svona eitt band til viðbótar sem verður tilkynnt um miðan maí mánuð.
Eins og glöggt má sjá verður hátíðin heljarinna veisla þetta árið, og ekki er verra að fá hljómsveit á borð við Cephalic Carnage alla leið frá bandaríkjunum til að skemmta landanum þetta árið:
facebook.com
27. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Agent Fresco Hljómsveitin Agent Fresco var að senda frá sér nýtt mynband við lagið Tempo, en lagið er að finna á breiðskífu sveitarinnar A Long Time Listening". Breiðskífan var gefin út á netinu í byrjun ársins 2011 en verður hægt að nálgast á cd eða vínil um miðjan maí mánuð. Umtalað myndband má sjá hér að neðan:
facebook.com
26. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Palms! Von er á því að hljómsveitin Palms sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu á þessu ári, en upptökur sveitarinnar voru hljóðblandaðar af Aaron Harris (áður í hljómsveitinni ISIS)
Hljómsveitin PALMS samanstendur af þremur fyrrum meðlimum hljómsveitarinnar ISIS (Aaron Harris, Clifford Meyer og Jeff Caxide) og Chino Moreno (úr hljómsveitinni Deftones).. Efni sveitarinnar verður gefin út af Ipecac Recordings útgáfunni sem áður gaf út breiðskífur ISIS. blabbermouth.net
26. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli The Acacia Strain með nýtt lag. Hljómsveitin The Acacia Strain hefur sent frá sér nýtt lag að nafni "Servant In The Place Of Truth" og er hægt að kaupa það hjá þjónustum á borð við Itunes og Amzon.
Sveitin gerði nýlega útgáfusamning við Rise Records útgáfuna stefnir að því að taka upp nýja breiðskífu á næstu vikum, en sveitin hefur fengið gítarleikarinn sinn Daniel "DL" Laskiewicz til að sjá um upptökurnar í þetta skiptið.
Hér að neðan má sjá og heyra þetta nýja lag sveitarinnar:
theprp.com
26. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Shadows Fall - Fire From the Sky Hægt er að hlusta á nýtt lag með hljómsveitinni Shadows Fall að nafni Fire From the Sky á heimasíðu noisecreep (eða hér að neðan). Sveitin stefnir að útgáfu nýrrar breiðskífu (Fire From the Sky) í maí mánuði, en það var enginn annar en Adam Dutkiewicz (Killswitch Engage) sem pródúseraði grip sveitarinnar í þetta skiptið.
theprp.com
26. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Fear Factory með nýtt lag. Hljómsveitin Fear Factory sendir frá sér plötuna "The Industrialist" í byrjun júní mánaðar og er sveitin búin að skella nýju lagi á netið til hlustunar. Lagið ber nafnið "Recharger" og er núþegar hægt að kaupa sér lagið á Itunes.
Fyrir áhugasama þá er hægt að hlusta á lagið hér: skullsnbones.com.
26. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli The Flesh Alive Sýnishorn af tilvonandi útgáfu hljómsveitarinnar Gojira er nú komin á netið. Útgáfan ber nafnið The Flesh Alive" og saman stendur af 2 DVD diskum og 1 geisladisk (einnig til sem blu-ray í stað DVD) og verður gefin út í byrjun júní mánaðar.
Sveitin mun til viðbótar senda frá sér nýja breiðskífu í lok júní mánaðar að nafni "L’Enfant Sauvage" en fyrsta smáskífa plötunnar er væntanleg 1. maí næstkomandi.
Hér að neðan má sjá umtalað sýnishorn:
theprp.com
21. apríl 2012 lau. | Skrifa athugasemd
| Valli Feistodon Hljómsveitirnar Feist og Mastadon senda frá sér í dag splitplötuna Feistodon þar sveitirnar taka lög eftir hvora aðra, hér að neðan má heyra lögin:
(tóndæmin eru núna farin af netinu) theprp.com
15. apríl 2012 sun. | Skrifa athugasemd
| Benjamín Bent Árnason Ert þú hljómborðsleikari með sítt hár? Ísfirska Experimental hljómsveitin "Metathesiophobia" leitar að hljómborðsleikara sem er tilbúin/n að spila nokkrar arpeggíur og stóra "sinfóníu hljóma" á tilvonandi demó plötu sveitarinnar.
13. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Skálmöld í hljóðver! Í dag, föstudaginn þrettánda apríl 2012, hefur Skálmöld upptökur á annarri plötu sinni. Síðan sú fyrsta kom út í lok árs 2010 hafa stórir hlutir gerst, sveitin aukið jafnt og þétt við fylgi sitt, spilað á stærstu þungarokkshátíðum heims og farið á tónleikaferðalög um gervalla Evrópu. Hér heima á Íslandi er sömu sögu að segja, tónleikahald hefur verið mjög stíft og áhersla lögð á að spila fyrir sem flesta. Í bland við hefðbundna rokktónleika hefur sveitin haldið þónokkuð marga sitjandi tónleika sem minna einna helst á leikhúsupplifun og einnig hafa Skálmaldarmenn lagt mikið upp úr því að spila fyrir yngri kynslóðina.
Enda þótt upptökur séu að hefjast er þó ekki reiknað með að nýja platan, sem hefur hlotið nafnið „Börn Loka“, líti dagsins ljós fyrr en í haust. Efni af nýju plötunni hefur þó þegar hljómað á tónleikum undanfarið og fullvíst má telja að meira slíkt komi til með að heyrast þegar haldið verður upp á upptökulok með stórtónleikum á Nasa daginn fyrir uppstigningardag, þann 16. maí næstkomandi.
Upptökustjóri Skálmaldar er sem fyrr Axel „Flex“ Árnason og er áhugasömum bent á að fylgjast með upptökuferlinu á Facebooksetri sveitarinnar. hardkjarni.com
13. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Killwhitneydead Hljómsveitin Killwhitneydead stefnir á útgáfu á nýju efni núna í ár, en ný breiðskífa sveitarinnar hefur fengið nafnið "Suffer My Wrath". Platan verður nokkuð ólík öðrum plötum sveitarinnar þar sem sveitin hefur ákveðið að setja fókusinn á hefðbundnari lagasmíði fremur en 2 mínútna lögin sem þeir eru þekktir fyrir. Hér að neðan má sjá má heyra tóndæmi af því sem má heyra á nýju plötunni:
tribunalrecords.net
13. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Shadows Fall og Fire From The Sky Hljómsveitin Shadows Fall sendir frá sér nýja breiðskífu 15. maí næstkomandi og fékk sveitin Andam Dutkiewicz (gítarleikara Killswitch Engage) til að taka upp plötuna. Platan hefur fengið nafnið Fire From The Sky og verður gefin út af Razor & Tie útgáfunni. Hér að neðan má sjá myndband frá gerð plötunnar:
theprp.com
13. apríl 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Metal Masters 3 Heljarinnar tónleikhátíð var haldin í Lyklaklúbbnum í Hollywoodborg í gærkvöld þar sem stjörnur úr hinum og þessum þungarokksveitum komu saman og spiluðu vel valin lög. Meðal gesta þettakvöldið voru:
Phil Anselmo (Down, ex-Pantera)
David Ellefson (Megadeth)
Kerry King (Slayer)
Dave Lombardo (Slayer)
Mike Portnoy (Adrenaline Mob, ex-Dream Theater)
Frank Bello (Anthrax)
Charlie Benante (Anthrax)
Chris Broderick (ex-Megadeth)
Meðal áhugaverða stunda þetta kvöldið var að sjá Geezer Butler (Bassaþrumu Black Sabbath) taka lagið með Phil Anslemo og félögum eins og sjá má hér að neðan:
theprp.com
12. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| valli Madball með nýtt efni Samkvæmt twitter færslu þeirra Madball manna er sveitin næstum því búin að taka upp nýtt efni. Sveitin stefnir að því að gefa út EP plötu sem mun innihalda 4 -5 lög og er það Erik Rutan (Cannibal Corpse, Goatwhore) sem tekur upp efni sveitarinnar eins og seinustu plötu sveitarinnar Empire. Twitter.com
12. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Revolver Golden Gods Revolver tímaritið hélt upp á sína árlegu hátíð í gærkveldi og verðlaunaði tónlistarmenn í harða rokkinu á eftirfarandi hátt:
* Besti gítarleikarinn: Jinxx and Jake Pitts (BLACK VEIL BRIDES)
* Besti trommarinn: Jeremy Spencer (FIVE FINGER DEATH PUNCH)
* Paul Gray veðlaunin - Besti bassaleikarinn: Nikki Sixx (MÖTLEY CRÜE, SIXX: A.M.)
* Riffakóngurinn: Slash
* Endurkoma ársins: SLIPKNOT
* Besta alþjóðlegabandið: X JAPAN
* Besta tónleikabandið: AVENGED SEVENFOLD
* Besta söngkonan: Amy Lee (EVANESCENCE)
* Mesti íþróttarokkarinn: CM Punk (WWE wrestling)
* Hliðhollustu aðdáendurnir: AVENGED SEVENFOLD
* Plata ársins: KORN's "The Path Of Totality"
* Gull guðs verðlaunin: Gene Simmons (KISS)
* Ronnie James Dio ævistarfsverðlaunin: RUSH Revolver
12. apríl 2012 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Vision Of Disorder Hljómsveitin Vision Of Disorder er þessa dagana ganga frá upptökum á nýrri breiðskífu. Samkvæmt fréttum úr herbúðum sveitarinnar er sveitin núþegar byrjuð að hljóðblanda nýja afni en sveitin fékk Will Putney til að pródúsera plötuna í þetta skiptið á meðan Cameron Webb (Motorhead, Social Distortion) sér um að hlóðblanda þetta allt saman. Von er á að sveitin gefi út plötuna á næstu mánuðum með aðstoð Candelight útgáfunnar. theprp.com