Alla fimmtudaga frá klukkan 23:00

Tónleikar á næstunni:

MAGRUDERGRIND
23. febrúar 2012 (fimmtudagur)
Ameríska grindcore/power violence hljómsveitin MAGRUDERGRIND er á leiðinni á evróputúr og ætla að byrja ... [meira]

MAGRUDERGRIND
PLASTIC GODS
LOGN


Sólstafir, Dimma og Gruesome Glory á Græna Hattinum
24. febrúar 2012 (föstudagur)
Sólstafir og Dimma ætla að þeysast norður og leika á Græna Hattinum föstudagskvöldið 24. feb. ásamt Gruesome ... [meira]

Sólstafir, Dimma, Gruesome Glory


Mercy Buckets, Gunslinger, Chino -Bar 11 25. feb
25. febrúar 2012 (laugardagur)
Í tilefni þess að ég (Birkir Snær Mánason) á afmæli laugardaginn 25. Febrúar, langar mig til að skella ... [meira]

Mercy Buckets
Gunslinger - http://www.facebook.com/gunslingericeland
Chino - http://www.facebook.com/chinoiceland


Fróðleikur
Imprint
Nafn bandsins Vision of disorder var tekið úr kennslubók sem Tim (söngvari) var að lesa í grunnskóla, honum fannst þetta það cool að hann ákvað að sýna bandinu sínu þetta.


Mynd dagsins


RSS - Fréttir

23. febrúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli
Magrudergrind í kvöld.
Magrudergrind í kvöld. Vinir okkar hjá Eistnaflugi standa fyrir heljarinnar tónleikum í kvöld:

Við erum að koma undan ógeðslegum, köldum og myrkrum vetri og er því tilvalið að kíkja á Gaukinn fimmtudagskvöldið 23. febrúar og hlýja sér við ljúfa tóna og taka smá upphitun fyrir Eistnaflugið! Því þá ætlar strákarnir í Amerísku grind / powerviolence hljómsveitinni MAGRUDERGRIND að heiðra okkur með nærveru sinni. Með þeim verða góðir gestir Doom guðirnir í PLASTIC GODS sem eru að vinna í nýrri breiðskífu sem er væntanleg á árinu. Ungstirnin í LOGN sem nýlega gáfu út breiðskífuna "Í fráhvarfi ljós myrkrið lifnar við" sem er fáanleg m.a. á gogoyoko.

Miðar verða seldir við hurð, enginn posi bara beinharðir peningar og kostar 2000 krónur inn.

MAGRUDERGRIND - Mæspeis
PLASTIC GODS - Mæspeis - gogoyoko
LOGN - Mæspeis - gogoyoko

hardkjarni.com

23. febrúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Celestine!
Örviðtal - Celestine! Núna í vikunni náði ég sambandi við hljómsveitina CELESTINE og skellti saman nokkrum spurningum í eitt örviðtal. Omie Örn Ómarss svaraði u m hæl og hér má lesa það sem okkur fór á milli:

Nú er nokkuð langt síðan að ég hef heyrt í Celestine og því mikilvægt að vita, hvað er að frétta af ykkur Celestine mönnum?
Það er allt gott að frétta héðan. Erum núna í æfingarbúðum að undirbúa tónleika mjög bráðlega með öðrum þungarokkurum það verður klassi

Nú kemur fram að á fésbókarsíðu sveitarinnar að þið séu að vinna að ykkar þriðju plötu, hvernig gengur og hvað er stutt þangað til að hinn almenni rokkari geti notið hennar?
Við erum að leggja lokahönd á mixingu sáralítið eftir þó að það hafi tekið sinn tíma. Erfitt process kannski stundum eru heilar 12 gítarrásið eða meira í gangi í einu og það krefst mikinn tíma að láta það sánda. Fötin undir plötuna eru öll klár þegar hún kemur úr masteringu. Kemur fyrir eistnaflugið vonandi!

.. í kjölfarið hvenær fáum við að heyra nýjar upptökur (þá á netinu).
Ég held að það gæti bara farið að detta inn hvenær sem er

Það er nú nokkuð langt síðan að ég sá ykkur á tónleikum síðast (11 ásamt klink), þar fannst mér ég heyra einhverjar áherslu breytingar hjá sveitinni, er það rétt?
já og nei. Við erum ennþá nýþungir en þó komnir með eitthvað annað en bara þunga.

Við hverju má búast við af sveitinni þetta árið?
Plötu, tónleikum og eistnaflugi.

hardkjarni.com

20. febrúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli
Muck með útgáfutónleika
Muck með útgáfutónleika  Hljómsveitin Muck heldur útgáfutónleika sína 3.mars nætkomandi á Gauk á stong.

Skemmtun kvöldsins hefst klukkan 21:30 og kostar aðeins 1000 krónur inn. Það eru hljómsveitirnar Sudden Weather Changer, Mammút og The Heavy Experience sem sjá um að hita salinn upp fyrir Muck.

Hljómsveitin Muck sendi nýverið frá sér nýja breiðskífu að nafni Slaves og verður gripurinn til sölu á staðnum. Einnig má gera ráð fyrir því að hljómsveitin verði með annan varning til sölu þetta kvöldið og því mikilvægt að taka með sér nokkra auka seðla til að skreyta sig vel og mikið.


Hér til hliðar má sjá nánari kynningu á tónleikunum.

hardkjarni.com

15. febrúar 2012 mið. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Nökkvi í Gone Postal
Örviðtal - Nökkvi í Gone Postal Hljómsveitin Gone Postal hefur ekki verið áberandi síðastliðna mánuði og því tilvalið að skella nokkrum spurningum á Nökkva gítarleikara til að komast að öllu því helsta sem er í gangi hjá sveitinni.

Hvað er að frétta úr herbúðum Gone Postal?
Það er allt gott að frétta hjá okkur. Við höfum verið í lægð síðustu misseri að undirbúa róttækar breytingar innan hljómsveitarinnar hvað varðar lagasmíðar og annað sem þurfti að breyta til þess að halda þessu viðgangandi.

Hvenær fáum við svo loksins að hlusta á nýja plötu frá sveitinni?

Eins og áður hefur komið fram þá tókum við upp plötu í stúdíó Fosslandi þarsíðasta sumar en vegna ýmissa tafa hefur hún ekki ennþá fengið að líta dagsins ljóss. Við stefnum þó á að koma henni út á þessu ári þrátt fyrir að hugmyndastefna og tónlistarstefna hljómsveitarinnar sé allt önnur í dag en þegar þetta efni var tekið upp.

Hvernig kom upp sú hugmynd að senda frá ykkur internet promo til að kynna nýja efni?

Sú hugmynd að gefa út kynningarefni er mikilvægur þáttur í nánast öllu sem viðkemur tónlist á einn eða annan hátt og sýnir fram á að listræn stöðnun eigi sér ekki stað innan sveitarinnar. Allavega í okkar tilfelli þar sem bilið á milli eldra efnisins og kynningarefnisins sem við sendum frá okkur á síðasta ári er allverulegt.

Hvernig er með meðlimamál sveitarinnar, eruð þið að leita ykkur að gítarleikara, eða ætlið þið að halda sveitinni eins og hún er?

Ólíkur tónlistarbakrunnur okkar sem heild myndar mjög sérstaka blöndu þungarokks sem hefur blómstrað mikið síðustu misseri. Þess vegna settum við gítarleikaraleitina á hilluna og einbeittum okkur frekar að því að vinna betur saman sem heild. Það voru þó sterkar hugmyndir á sínum tíma að ráða inn nýjann gítarleikara til þess að gefa sveitinni þann innblástur sem hún þurfti til þess að halda áfram stöðugri þróun. Möguleikinn er alltaf til staðar en er þó alls engin framtíðarhugsun.

Hverjar eru svo áætlanir sveitarinnar fyrir árið ?

Við ætlum fyrst og fremst að koma út áðurnefndri plötu og jafnframt að taka upp nýtt efni á árinu. Það verður mjög frábrugðið gamla efninu en fylgir mjög eðlilegri þróun okkar sem tónlistarmenn og verður mjög spennandi að sjá hvernig viðbrögð fólks verða við því. Tónleikar verða einnig á dagskrá.

hardkjarni.com

14. febrúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli
Fear Factory endurbassast
Fyrrum bassaleikari hljómsveitanna Chimaira og Six Feet Undier, Matt DeVries, er nú genginn til liðs við hljómsveitina Fear Factory. Fyrrum bassaleikari sveitarinnar, Byron Stroud, gekk nýlega til liðs við hljómsveitina 3 Inches of Blood. Fear Factory eru þessa dagana að ljúka vinnslu á nýrri plötu sem hefur fengið nafnið The Industrialist og verður gefin út síðar á þessu ári.
theprp.com

14. febrúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli
Koloss
Meshuggah menn hafa verið duglegir að skella upplýsingum hér og þar um tilvonandi útgáfu sína Koloss. En plata þessi verður gefin út í lok marsmánaðar. Í delux útgáfunni verður viðbótar efni í formi mynddisk (DVD) þar sem hægt verður að sjá efni að nafni: "Konstrukting The Koloss" sem er væntanlega gerð plötunnar, í viðbót við tónleikaupptökur frá Indlandi. Það er Nuclear Blast sem gefur út efni Meshuggah um allan heim.
theprp.com

14. febrúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Sigurður í Atrum
Örviðtal - Sigurður í Atrum Örviðtal er góð lausn við svartadauða, bólusótt og kvefi, því er alltaf gott að skella í eitt slíkt snemma á þriðjudags... morgni. Ég hafði samband við Sigurð Árna Jónsson söngvara og gítarleikara hljómsveitarinnar Atrum og þessar umræður okkar skildu þetta eftir sig:

Hvað er að gerast í herbúðum sveitarinnar þessa dagana?
Það er svona hitt og þetta, æfa og spila á tónleikum, semja nýtt efni og mikið að spá í spilin.

Hvernig voru tónleikar um daginn með Skálmöld og Angist?
Hreint út sagt stórkostlegir. Að venju var fagmannlega staðið að þessu, fullt hús og mikið fjör.

Er von á fleiri tónleikum með sveitinni á komandi vikum?
Já við spilum 3. mars á Wacken Metal Battle Iceland á NASA. Þar verður ekkert sparað.

Hvernig fór allt þetta Wacken Metal Battle ævintýri ykkar?
Það gekk mjög vel. Þetta er harður heimur og gigg á Wacken er engin ávísun á heimsfrægð. Ég held við höfum fengið akkúrat það sem við bjuggumst við og vonuðumst til af þessu, frábæra reynslu, nýja vini og aðdáendur.

Eitthvað að lokum?
Þakka Skálmöld og Angist fyrir hönd okkar í Atrum, og stærstu þakkirnar fá tónleikagestirnir sem gerðu þetta alvöru. Hvet alla til að mæta á Wacken Metal Battle Iceland á NASA 3. mars.

hardkjarni.com

11. febrúar 2012 lau. | Skrifa athugasemd | Valli
Meshuggah lekur
Nýtt lag með hljómsveitinni Meshuggah lak á netið í vikunni, en svo virðist vera að sveitin hafi að einhverju leiti staðið að því sjálf. Lagið verður að finna á tilvonandi brieðskífu hljómsveitarinnar, Koloss, sem gefin verður út seinna á árinu. Umtalað lag er að finna hér:

iamaleak by gregoriev_suckalotsky

lambgoat.com

11. febrúar 2012 lau. | Skrifa athugasemd | Valli
Prong með nýja plötu
Öldnu rokk hundarnir í hljómsveitinni Prong senda frá sér nýja breiðskífu 24. apríl næstkomandi. Nýja platan hefur fengið nafnið Carved Into Stone. Sveitin fékk Steve Evetts (The Dillinger Escape Plan, Every Time I Die ofl) til að pródúsera gripinn, en það er Long Brach útgáfan sem gefur út efni sveitarinnar.

Lagalisti plötunnar er eftirfarandi:
01 – “Eternal Heat”
02 – “Keep On Living In Pain”
03 – “Ammunition”
04 – “Revenge … Best Served Cold”
05 – “State Of Rebellion”
06 – “Put Myself To Sleep”
07 – “List Of Grievances”
08 – “Carved Into Stone”
09 – “Subtract”
10 – “Path Of Least Resistance”
11 – “Reinvestigate”

theprp.com

7. febrúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Endless Dark
Örviðtal - Endless Dark Örviðtölin eru tilvaldin til að kynnast því sem er að gerast í íslensku rokki og því áhugavert að sjá hvað meðlimir hljómsveitarinnar Endless Dark hafa að segja, ég skellti því nokkrum spurningum á Viktor Sigurðsson söngvara sveitarinnar og hér að neðan má lesa það sem okkur fór á milli:

Hvað er að frétta af hljómsveitinni Endless dark svona snemma í febrúar mánuði?

Við erum að vinna í nýrri plötu sem verður "concept" plata og eru nokkrir meðlimir bandsins nú að semja sögu sem mun verða þema plötunar, svo getur verið að það komi út myndasögublað með plötunni þegar hún kemur út en við verðum bara að bíða og sjá til.

Fyrir þá rokkara sem ekki þekkja til, hvernig tónlist spilar sveitin?

Tónlistar stefnan sem við spilum er í þeim flokki sem kallast "Pornogrind"........nei djók þetta er flokkað undir screamo/metalcore, blanda af þungum metal riffum og poppuðum melódískum söng, ennþá í vafa? þá bara endilega skella sér á EP plötuna okkar "Made of glass" sem er fáanleg í smekkleysu og geisladiskabúð valda.

Hvernig stendur á því að þið spilið ekki oftar með dauðarokksveitum landans?

Jaaa fyrst og fremst þá erum við ekki dauðarokk og fittum ekki inní svoleiðis hóp, við viljum ekki spila með svoleiðis böndum né vilja þau spila með okkur...win win. En hinsvegar þá spilum við með vinaböndum okkar sem heita Shogun,Wistaria, We made god og fl. og sá hópur af böndum eru bestu harðkjarna bönd íslands þannig við erum nokkuð sáttir með hópinn sem við völdum okkur.

Er von á tónleikaferðalagi með sveitinni núna í ár?

Það er verið að vinna í því í þessum skrifuðu orðum. Umboðsmaður okkar í englandi hann Andy bernstein og "touring labellinn" X-RAY touring eru búnir að finna einhver festivöl og annað slíkt þannig maður bíður bara eftir tölvupósti frá þeim,en það sem er núna næst á döfini er music festival í canada sem verður haldið í mars þannig við erum orðnir helvíti spenntir yfir því.

Eitthvað að lokum?

Já að lokum vill ég seigja farið bara vel með ykkur öllsömuæ þarna úti,ekki enda eins og layne staley,drekkið kool-aid,kaupið plötuna okkar,kaupið flotta skó,hringið í jens,kaupið plötuna okkar og lifið heil og takk fyrir hönd endless og takk fyrir mig .

hardkjarni.com

7. febrúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Haukur í Moldun
Örviðtal - Haukur í Moldun Þriðjudagur til örviðtala! Því að í dag eru 2 Örviðtöl og það fyrra er við Hauk í Moldun!

Hvað er að frétta úr herbúðum Moldunnar manna?

Það er bara allt gott að frétta hjá okkur Moldun bræðrum.
Við erum að leggja lokahönd á okkar fyrstu plötu og erum komnir á gott ról með að semja nýtt og ferskt efni fyrir plötu númer tvö.

Á fésbókarsíðunni ykkar kemur fram að þið séuð að vinna að plötu, hvernig gengur?

Það gengur…. það gengur. Hún mun líta dagsins ljós á næstu mánuðum, eftir langt og frekar strembið ferli.

Nú ferðuðust þið til frakklands á seinasta ári, hvernig gekk það ferðalag og hvernig voru viðtökurnar?

Ferðalagið gekk mjög vel. Mikið af bjór og mikið af bro-mance. Og viðtökurnar voru vægast sagt frábærar. Frakkarnir kunna þetta alveg; allir slammandi og dansandi kvöld eftir kvöld þó þeir þekktu lögin okkar örugglega ekki jack! Mjög hresst allt saman. Að vissu leyti pínu súrealísk lífsreynsla líka, þar sem fólk var að koma upp að manni eftir gigg og biðjandi um eiginhandaráritanir og vildu fá að taka myndir af sér með okkur og þannig stöff. Manni leið stundum eins og maður væri í Down eða eitthvað álíka. Held samt að enginn hafi viljað fá mynd af sér með Adda bassaleikara, en það er nú allt önnur saga. (djók)
En að fá tækifæri til að spila svona í útlöndum, kvöld eftir kvöld, á nýjum og nýjum venue-um fyrir nýjan og nýjan hóp af fólki er nátturlega draumurinn, og við gætum ekki verið þakklátari fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu.

Nú voruð þið með lag í kvikmyndinni Borgríki, hvernig kom það til?

Það kom einfaldlega þannig til að Gunni trommari var að vinna við gerð myndarinnar, og leikstjórinn spurði hvort við værum ekki til í að hafa lag í myndinni. Góð saga.

Við hverju meiga svo íslenskir rokk unnendur búast við af sveitinni í ár?

Fyrstu plötunni okkar og sjittlód af tónleikum. Við erum bara rétt svo byrjaðir, sjáðu til…

hardkjarni.com

6. febrúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli
Jesse Leach aftur genginn til liðs við Killswitch Engage
Þá eru fréttirnar staðfestar, fyrrum söngvari hljómsveitarinnar Killswitch Engage, Jesse Leach, er formlega genginn aftur til liðs við sveitina. Það er ekki langt síðan að sveitin tilkynnti það að söngvari sveitarinnar væri ekki lengur í bandinu, en þetta hljóta að teljast gleðifréttir fyrir alla aðdáendur sveitarinnar. Nánar um þetta allt saman á heimasíðu sveitarinnar: www.killswitchengage.com.
theprp.com

6. febrúar 2012 mán. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Ophidian I
Örviðtal - Ophidian I Það verður heill hellingur af örviðtölum þessa vikuna eins og síðustu vikur, enda virðast örviðtölin fara vel í landan. Þetta er tækifæri fyrir hljómsveitir að koma frá sér nýjustu upplýsingum og um leið tækifæri fyrir okkur hin að komast að því hvað er að gerast í íslensku rokki á þessu herrans árið 2012. Fyrstir með örviðtal þessa vikuna er hljómsveitin Ophidian I, en ég settis niður á öræfum með Símon (gítarleikara) þar sem við spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar, en þetta er það sem ég náði að punkta niður:

Ég las það á fésbókarsíðu sveitarinnar að þið eruð byrjaðir að taka upp efni fyrir ykkar fyrstu plötu.

Mikið rétt, við erum búnir að vera undanfarna daga í Stúdjó Sýrlandi (bæði Hljóðrita í Hafnarfirði og sýrlandi í vatnagörðum) að púla við að taka upp 9 lög. Þetta efni er háklassa teknískt dauðarokk, hratt og flókið en jafnframt mjög slammvænt á köflum og viðhalda góðu flæði!

Hvenær má svo eiga von á þessu í eyru almennings?

Við erum að vonast til þess að platan komi út ekki mikið seinna en apríl, en það veltur svolítið á hversu lengi útgáfufyrirtækið er að klára prentun og þessháttar. Allavega klárlega fyrir sumarið!

Hvað tekur svo við eftir útgáfuna á plötunni?
Eftir útgáfuna munum við fyrst og fremst reyna að koma plötunni á gott ról í útlöndum og fá meiri athygli, annars bara spila eins og við getum og svo förum við mjög líklegast á túr í Rússlandi á vegum SFC Records (plötufyrirtækið okkar) en það á margt eftir að koma í ljós í sambandi við það sem verður örugglega mjög athyglisvert.

Nú eru meðlimir sveitarinnar einnig í öðrum sveitum, hvernig gengur að viðhalda sveit sem þessarri?

Það gengur bara þokkalega að halda bandinu saman, allir vel skipulagðir og svo eru líka margar af hinum hljómsveitunum okkar ekki jafn aktívar og þessi.

Hverjir eru helstu áhrifavaldar sveitarinnar?

Áhrifavaldar okkar eru margar og mismunandi sveitir innan tekníska geirans, svona allt frá hröðum og brútal böndum eins og Hour of Penance yfir í progg-tech sveitir eins og Obscura.

hardkjarni.com

4. febrúar 2012 lau. | Skrifa athugasemd | Valli
Between the burried and me taka upp plötu
Hljómsveitin Between the burried and me heldur í hljóðver núna í vor og er áætlun að taka upp efni fyrir nýja plötu. Við má búast að vinnsla á plötunni hefjust í maí mánuði og verður það Jamie King sem mun vinna með sveitinni að nýja efninu.
theprp.com

4. febrúar 2012 lau. | Skrifa athugasemd | Valli
Vulgar Display of Power
Verið er að vinna að herjarinnar afmælisútgáfu af Pantera plötunni Vulgar Display of Power. Núna í ár eru 20 ár frá útgáfu plötunnar og er búst við að glæsilegri útgáfu eins og sveitin gerði með 20ára afmælis útgáfu á plötunni Cowboys from hell. Von er á því að eitt nýtt lag verði á plötunni, en sveitin tók upp lagið Piss á sama tíma. Bútar úr laginu voru svo notaðir í önnur lög og því lagi að mestu gleymt og grafið (að sögn fyrrum trommara sveitarinnar Vinne Paul.
theprp.com

3. febrúar 2012 fös. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Skálmöld
Örviðtal - Skálmöld Föstudagur til fjörs og fjör dagsins er örviðtal við Björgvin Sigurðsson, söngvara og gítarleikara hljómsveitarinnar Skálmöld. Að sannri víkíngahefð settumst við niður við langeld og fitluðum við lyklaboð samtímans, hér að neðan má lesa það sem okkur fór á milli:

Hvað er að frétta af Skálmaldarmönnum?

Það er allt fínt að frétta úr herbúðum okkar Skálmaldarmanna. Við erum svona að komast niður á jörðina eftir lygilega velgengni á síðasta ári og höfum notað síðustu vikur í að semja nýtt efni. Menn voru orðnir mjög hungraðir í að fara að semja ný lög, svo stemningin er býsna góð hjá okkur þessa dagana.

Hvenær varð til sú hugmynd sveitarinnar að fá heilan karlakór til að syngja með á plötunni Baldur?

Gunni Ben á mestan heiðurinn af því. Honum var falið að semja nokkurs konar intro fyrir síðustu plötu og hann leysti það gríðarlega vel. Og þar sem hann er mikill kórmaður samdi hann að sjálfsögðu karlakórsverk. Hann fékk síðan einn af kórunum sem hann stjórnar til að kíkja í stúdíó einn dagspart og syngja verkið. Við vorum, og erum, gríðar sáttir.

Hvað tekur nú við á eftir Baldri, er nýja efnið einnig þema kennt?

Já. Snæbjörn, bibbi, ljóðskáld Skálmaldar, hefur barið saman nýja sögu sem mun vera sögð á næstu plötu. Flott saga og flott stemning. Nú þurfum við bara að berja saman nokkur lög sem hæfa umfjöllunarefninu.

Hvernig gengur að halda utan um 6 manna hljómsveit?

Það gengur bara býsna vel. Við erum mjög samhentir í því sem við erum að gera og okkur gengur vel að vinna saman. Það hafa í það minnsta engir stórir árekstrar orðið. Vissulega eru menn ekki alltaf 100% sammála en við erum fullorðnir menn, fjandinn hafi það. Svo höfum við líka svo ofboðslega gaman að því sem við erum að gera. Það er stór plús.

Nú styttist í stóra tónleika með sveitinni, segðu okkur aðeins nánar frá þeim.

Við verðum með tvenna tónleika á Gauknum þann 4. Febrúar. Fyrri tónleikarnir eru fyrir alla aldurshópa. Við héldum „all ages“ tónleika síðasta sumar og það tókst svakalega vel og okkur langaði mikið til að endurtaka þann leik. Húsvíska unglingasveitin Mont mun spila með okkur á fyrri tónleikunum.
Seinna þennan dag verða svo þungavigtartónleikar. Þá munu Angist og Atrum, tvær af betri sveitum Íslands (ef ekki heimsins) spila með okkur. Það verður án nokkurs vafa sveitt og góð stemning þar. Við höfum áður spilað með þessum hljómsveitum og það hefur verið algjörlega frábært. Enda frábært fólk og frábærar hljómsveitir.

Hverjar eru svo áætlanir sveitarinnar fyrir árið 2012?

Við erum að semja nýtt efni þessa dagana fyrir nýja plötu. Við munum ráðast í upptökur strax eftir páska. Útgáfudagur er ekki alveg ákveðinn, síðsumarsútgáfa ætti þó ekki að vera óraunhæf. Við stefnum í það minnsta á það að hafa masterinn klárann fyrir sumarið, sjáum svo til hvað verður.
Svo spilum við vonandi á einhverjum flottum tónleikum á árinu. Erum búnir að staðfesta nokkra tónleika hérna heima nú þegar. Það væri svo líka gaman að fá fleiri tækifæri til að spila utan Íslands, við verðum í Kaupmannahöfn í lok febrúar og erum svo staðfestir á eina tónlistarhátíð næsta sumar, Party San í Þýskalandi, en við erum alveg til í meira.
Þetta er ekki búið.

Til viðbótar má minnast á það að skálmaldarmenn verða í hljóðveri 12 á rás 2 í dag þar sem þeir ætla að taka lagið!

hardkjarni.com

2. febrúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli
Skálmöld spilar á tvennum tónleikum á laugardaginn.
Skálmöld spilar á tvennum tónleikum á laugardaginn. Víkingarokksveitin Skálmöld spilar á tvennum tónleikum á Gamla Gauknum á laugardaginn.

Klukkan 16.00 hefjast tónleikar sem ætlaðir eru öllum aldurshópum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Skálmöld spilar á slíkum tónleikum og með þessu býðst fjölskyldum að koma og njóta alvöru þungarokks í hentugum félagsskap og á siðsamlegum tíma. Verði á þessa tónleika er stillt í hóf og þannig er tekið tillit þess að foreldrar fylgi börnum sínum. Við hæfi þykir að láta unglingahljómsveit sjá um upphitun og því mun Mont fá það verkefni en sveitin ferðast alla leið frá Húsavík.

Um kvöldið verða síðan hefðbundari tónleikar fyrir alla þá sem náð hafa tvítugsaldri. Húsið opnar þá klukkan 21.00 og skömmu síðar stígur Angist á sviðið, þá Atrum og í kjölfarið Skálmöldin sjálf.

Ferskir vindar blása um herbúðir Skálmaldar þessa dagana og því getur fólk átt von á góðu. Þannig hyggst sveitin gefa áhangendum sínum nasasjón af nýju efni sem nú er í smíðum og mun prýða nýja plötu sem væntanleg er á árinu. Að auki verður nýr varningur til sölu á tónleikunum, til að mynda bolir og peysur teiknaðar af listamanninum Samuli „Skrymer“ Ponsimaa. Skrymer þessi er sennilega þekktari sem gítarleikari hinnar goðsagnakenndu finnsku metalsveitar Finntroll en sveitirnar voru saman á tónleikaferðalagi um Evrópu nú fyrir áramót.

Allir ættu því að finna sér eitthvað við sitt hæfi á Gamla Gauknum á laugardaginn. Miðaverð á fyrri tónleikana er 1.500 krónur og 2.500 krónur á þá seinni. Eingöngu er hægt að kaupa miða við innganginn og fólki því bent á að mæta tímanlega.

hardkjarni.com

2. febrúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Logn
Örviðtal - Logn Enn halda áfram Örviðtölin, í þetta skiptið hafði ég samband við Fritz í Logn og hann lét eftirfarandi liggja eftir sig:

Sælir, ég er búinn að vera njóta disksins Í fráhvarfi ljóss, myrkrið lifnar við síðastliðna daga, segðu okkur aðeins frá disknum.

Efnið á plötunni er í rauninni frekar gamalt þar sem að það tók okkur dágóðan tíma að taka hana upp og gefa út. Flest lögin voru samin veturinn 2009-2010 en komu svo ekki út fyrr en tveimur árum seinna. Diskurinn inniheldur 13 lög og er rúmar 40 mínútur.

Að textunum á nýju plötunni, hvaðan kemur öll þessi biturð og harðneskja?

Þetta eru nú bara skoðanir og tilfinningar sem mér hefur tekist að skrifa niður og gargað með hávaðanum. Ég kýs að skrifa um mín neikvæðu viðhorf gagnvart heiminum og fólkinu í kringum mig en það er ekki þar með sagt að ég hafi ekkert gott um það að segja. Það bara hentar ekki tónlistinni.

Persónulega hefur mér bara fundist gríðarlegur léttir að skrifa svona ljóta hluti niður og leyfa þeim að vera þar í staðin fyrir að láta þá bitna á öðrum.

Hvað eruð þið gamlir?

Við erum á bilinu 18–19 ára gamlir.

Nú eruð þið búnir að vera til frá árinu 2008, hvernig hefur sveitin þróast á þessum tíma?

Mjög mikið, en við erum þó ennþá með sömu grunn hugmyndina um það hvernig hljómsveit við viljum vera og þegar að við byrjuðum. Tónlistin hefur bara svolítið þroskast með okkur. Við byrjuðum með þá hugmynd að spila sem reiðustu og hröðustu tónlist sem við vorum líkamlega færir um en með tímanum höfum við farið að prófa að blanda öðru inn í það. En ef að það hverfur, þá er ekkert Logn.

Nú eruð þið að spila á nokkuð áhugaverðum tónleikum núna í febrúar, segðu okkur nánar frá þeim.

Já! Við verðum að hita upp fyrir bandarísku hljómsveitina MARGRUDERGRIND ásamt doom sniglunum í Plastic Gods. Margrudergrind spila hreinræktað grind eins og það gerist best og eru þeir með stærri nöfnum úr þeirri senu. Gríðarlegur heiður að fá að spila með þeim! Tónleikarnir eru haldnir á Gauk á stöng fimmtudagskvöldið 23. Febrúar.

Við hvejru má búast við af Logn á árinu?

Við erum á fullu að vinna í nýju efni eftir að hafa loksins losað okkur við það gamla með útgáfu plötunnar. Við erum að spila hraðar en nokkru sinni fyrr en um leið með fullt af nýjum hugmyndum. Mikið um skrítnar taktpælingar og skær öskur.

hardkjarni.com

2. febrúar 2012 fim. | Skrifa athugasemd | Valli
Örviðtal - Wistaria
Örviðtal - Wistaria Það er kominn fimmtudagur og tilvalið að hafa hann hátíðlegan með tveim örviðtölum. Fyrra viðtalið er við hljómsveitina Wistaria og má lesa það sem okkur fór á mili hér að neðan:

Hvað er að frétta af hljómsveitinni Wistaria þessa dagana?
það er aðalega verið að punga út börnum hjá okkur núna og svo reyna semja ný lög þar á milli. svo bara að gera allt klárt fyrir upptökur á EP plötu sem við erum loksins að fara bomba út

Ég las það á netinu að þið voruð leita ykkur að bassaleikara, hvernig gekk sú leit?
það er svona semi enþá í gangi.. það hafa nokkrir sótt um hjá okkur. það verður gaman að sjá hver verður fyrir valinu

Hvaða hljómsveitir eru að hrífa ykkur mest þessa dagna (íslenskar og erlendar)
það er alveg allskonar. við erum allir með frekar ólíkan persónulegan stíl held ég. en til að svara fyrir mig hef ég mikið verið að hlusta á chelsea grin, suicide silence og gojira.

Þið byrjuðuð árið með stæl og heljarinnar tónleikum á gauknum, hvernig gengu þeir tónleikar?
Þetta var fyrsta skiptið sem við höfum tekið að okkur að skipuleggja og halda tónleika. En Þessir tónleikar gengu bara þrusu vel meðað við það og ég held að fólkið sem mættu hafi alveg verið nokkuð sátt með þetta við erum það allavega

Er ekki að fara að styttast í plötu frá ykkur?
jú loksins fer að koma að þessu. dabbi gítarleikari er búinn að vera á fullu að mappa þau lög sem fara á plötuna. við höfum ákveðið að senda frá okkur EP plötu í stað breiðskífu. svo förum við að vinda okkur í trommu upptökur bráðlega. við munum síðan reyna að vera dugleigir að koma með nýustu fréttir á facebook um hvernig gengur

hardkjarni.com

1. febrúar 2012 mið. | Skrifa athugasemd | Valli
dordingull á rás 2 á morgun!
Hljómsveitin Logn kemur við í hljóðverið hjá mér á morgun og spjallar við mig um nýju plötuna, í viðbót við almennt spjall um plötuna.


hardkjarni.com

Fréttir 1 - 20 af 2740
[Eldri fréttir]